Hljómsveitin Drykkir Innbyrðis var stofnuð í janúar árið 1986 og var strax stefnt að þátttöku í Músíktilraunum. Í upprunalegri skipan sveitarinnar voru Rúnar Friðriksson (söngur), Haukur Eiríksson (hljómborð), Viðar Garðarsson (bassi), Ingvi Rafn Ingvason (trommur) og Eiríkur S. Jóhannsson (gítar). Einnig voru Geir Rafnsson og Gísli Aðalsteinsson síðar hluti af hljómsveitinni og eiga þátt í mörgum laganna. Við tók tímabil strangra æfinga fram að keppninni þar sem hljómsveitin náði glæsilegum árangri og hafnaði í öðru sæti.
Sveitin starfaði til ársins 1990 og var áberandi í tónlistarlífi Akureyrar á þeim tíma. Nú, fjórum áratugum síðar, hefur hljómsveitin komið aftur saman og vinnur að útgáfu nýrrar plötu með ellefu lögum sem kemur út í október. Fyrsta smáskífan, Á vit feðranna, kemur út í dag, föstudaginn 24. apríl, á Spotify nákvæmlega 40 árum eftir þátttöku sveitarinnar í Músíktilraunum.

Hafið þið haldið sambandi í gegnum árin?
„Það hefur verið misjafnt,“ segja þeir. „Sumir hafa haldið góðu sambandi en aðrir lítið sem ekkert. Vináttan hefur þó alltaf verið til staðar, enda erum við að hluta til æskuvinir sem tókum okkar fyrstu skref í tónlist saman.“
Upphaflega stóð til að spila á tónlistarhátíðinni Eyrarrokki 2025, en af því varð ekki. Í framhaldinu kviknaði hugmyndin um að halda tónleika á Græna hattinum og svo þróaðist það út í að taka upp og gefa út plötu. Lagið Á vit feðranna sem er í raun um 38 ára gamalt og líkt og önnur lög á plötunni samið af hljómsveitinni. Platan er fjölbreytt og lögin fara í ólíkar áttir. Eitt lag er alveg nýtt og var unnið á sama hátt og áður, þar sem allir leggja sitt af mörkum, sem þeir telja að geri þetta bæði skemmtilegt og lifandi ferli. Allir sem koma að plötunni eiga það sameiginlegt að vera Akureyringar. Karl Örvarsson hannar umslagið, Pétur Hallgrímsson á myndina á umslaginu og Þorgeir Baldursson sér um myndatökur. Haukur Pálmason annast upptökur.
Framundan eru útgáfutónleikar sem verða haldnir laugardaginn 31. október á Græna hattinum á Akureyri og einnig eru tónleikar fyrirhugaðir í Reykjavík. Fleiri tónleikar eru í bígerð en verða tilkynntir síðar.
Að lokum, hvaðan kom nafnið á sínum tíma?
„Við vorum að æfa fyrir Músíktilraunir í bílskúrnum heima hjá foreldrum mínum,“ segir Viðar, „og reyndum að finna nafn á bandið. Á sama tíma vorum við eitthvað að velta fyrir okkur— þetta er svolítið tæknimál — hvort bassinn og gítarinn væru rétt stilltir innbyrðis. Á gólfinu var gamall ölkassi merktur ‘Egils drykkir’ sem við fórum að horfa á á meðan við vorum í þessum nafnapælingum. Ég las nafnið upphátt og þá sagði Eiríkur: ‘Drykkir Innbyrðis.’ Okkur leist strax vel á það og nafnið festist við bandið. Þannig að í raun má segja að þetta sé Eiríki að kenna,“ segir hann og hlær.










