NTC

Róbert stefnir á að skapa 100 ný störf á Siglufirði

Róbert stefnir á að skapa 100 ný störf á Siglufirði

Gangi áætl­an­ir líf­­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Genís á Siglu­f­irði eft­ir munu allt að 100 manns starfa hjá því inn­­an fimm ára. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.

Ró­bert Guð­finns­­son, for­­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, seg­ir í samtali við blaðið að mik­il tæki­­færi felist í fyrirtækinu. Hann segir jafnframt að ef hann verði ekki búinn að skapa 80 til 100 störf í fyritækinu eftir 4-5 ár líti hann svo á að honum hafi mistekist. Starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins er á Siglu­firði en þar starfa nú 15 starfs­menn.

Róbert segir að nauð­syn­legt sé að stór­auka fjár­fest­ingar í rann­sóknum og þróun til að vinna meiri verð­mæti úr því sem fram­leitt sé á Íslandi. Mikil vinna sé framund­an, og allir þurfi að leggj­ast á eitt og róa í sömu átt.

Sambíó

UMMÆLI