Sigurbjörn Birkir Björnsson, betur þekktur sem Birkir bekkur er einn vinsælasti snappari landsins en þúsundir manna fylgjast með lífi þessa mikla meistara á degi hverjum. Birkir er ekki bara hrikalega sterkur og duglegur í ræktinni heldur er hann einnig meistarakokkur. Við fengum Birki til að gefa lesendum okkar uppskrift af rétti sem hann kallar „Hrikalegur hakkréttur.“
Innihald
Hakk – 500 gr.
Túnfiskur – ein dós
Lean Body súkkulaðiprótein – tvær góðar skeiðar
Ostur – tvær til þrjár sneiðar
Rjómi – 1 dl
Aðferð
Hakkið er brúnað á pönnu og kryddað eftir smekk. Túnfisknum bætt við ásamt próteini og osti. Að endingu kemur svo rjómi og allt látið malla á pönnu í nokkrar mínútur, eða þar til osturinn bráðnar.
Þessu er svo skolað niður með ískaldri mysu en að sögn Birkis er hún bæði holl og hrikaleg. Verði ykkur að góðu!
UMMÆLI