Meirihluti lesenda Kaffið.is er á móti frumvarpi sem felur í sér breytingar á lögum um smásölu áfengis og afnám einkasölu ÁTVR á áfengi.
515 manns svöruðu könnun Kaffið.is í vikunni og af þeim sögðu 268 manns nei við því að fá áfengi í matvöruverslanir. 211 manns eru fylgjandi því en 36 manns stendur á sama um hvar áfengi er selt.
Er niðurstaðan í nokkru samræmi við könnun Zenter sem fram fór dagana 9. til 14. febrúar en þar voru 61,5% svarenda mótfallin áfengisfrumvarpinu sem var lagt fram af þingmönnum Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar, Viðreisnar og Pírata.
Í þeirri könnun, sem náði til 1023 manns, voru 22,8% sem sögðust vera hlynnt eða mjög hlynnt frumvarpinu og 15,7% voru hvorki hlynnt né mótfallin.
UMMÆLI