Þórsarar héldu í Hafnarfjörð í kvöld til að etja kappi við Hauka í Dominos-deild karla í körfubolta en Hafnfirðingar sátu í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins.
Jafnræði var með liðunum til að byrja með og var staðan að loknum fyrsta leikhluta 18-18. Heimamenn leiddu í leikhléi með 35 stigum gegn 29. Sóknarleikur beggja liða var frekar slakur allan tímann en fór að lokum svo að Haukar unnu með
George Beamon var atkvæðamestur í liði Þórs þrátt fyrir að lenda í villuvandræðum eftir að hafa fengið sína fjórðu villu í þriðja leikhlutanum.
Sherrod Wright bar lið Hauka á herðum sér en hann skoraði meirihluta stiga liðsins.
Stigaskor Þórs: George Beamon 22, Darrel Lewis 14, Ragnar Helgi Friðriksson 10, Tryggvi Snær Hlinason 9/14 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 9, Ingvi Rafn Ingvarsson 9.
Stigaskor Hauka: Sherrod Wright 42/12 fráköst, Hjálmar Stefánsson 12, Haukur Óskarsson 10, Emil Barja 7, Finnur Atli Magnússon 4, Breki Gylfason 4.
UMMÆLI