Akureyringurinn Natan Dagur Benediktsson stóð sig frábærlega þegar hann tók þátt í norsku útgáfu sjónvarpsþáttarins Voice. Natan Dagur söng lagið Bruises eftir Lewis Capaldi og grætti dómara þáttarins með frammistöðu sinni.
Í myndbandi sem sjónvarpstöðin TV2 hefur birt má sjá Natan í fyrstu áheyrnarprufunni þar sem hann fær fullt hús stiga hjá öllum dómurum.
Natan Dagur ferðaðist til Noregs ásamt föður sínum til þess að taka þátt í keppninni en systkini hans eru búsett í Noregi. Þeir hafa verið í Noregi síðan í haust vegna Covid-19 faraldursins.
Fyrsti þáttur norska Voice verður frumsýndur í kvöld í Noregi klukkan 20 að staðartíma.
Frammistöðu Natans má sjá á vef TV2 í Noregi með því að smella hér.
UMMÆLI