Eins og við greindum frá í síðustu viku ákváðu forráðamenn KA að samningur um samstarf KA og Þórs í knattspyrnu kvenna yrði ekki endurnýjaður.
Málið hefur vakið mikið umtal og margir séð ástæðu til að tjá sig. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á laugardaginn þar sem margt athyglsvert kom fram. Sævar sagði til dæmis í umræddu viðtali að KA hafi viljað koma meira að rekstri Þórs/KA og meðal annars boðist til að greiða hlutlausa búninga fyrir liðið.
„Hurðum hefur verið skellt á andlitið á okkur og sagt að okkur komi þetta ekkert við því Þór sjái um reksturinn. Öll umræða um að við höfum ekki haft áhuga og ekki viljað leggja neitt í þetta er bara röng. KA hefur á síðustu árum boðið háar upphæðir í peningum til að styrkja við afreksstefnu Þórs/KA,“ sagði Sævar.
Sævar fór yfir fleiri ástæður þess að KA vill binda endi á samstarfið og talaði meðal annars um iðkendafjölda. Aðspurður sagði Sævar að meira en 30 stelpur væru í 3.flokki félagsins um þessar mundir. Vakti sú tala mikla athygli, meðal annars á Twitter þar sem Sævar var sakaður um lygar. Kaffið kannaði málið og getur staðfest að iðkendur í 3.flokki KA eru fjórtán talsins.
Viðtalið í heild má heyra HÉR.
Sjá einnig
UMMÆLI