Menningarsjóður Akureyrar auglýsir eftir umsóknum um styrki. Auglýst er eftir umsóknum um samstarfssamninga og verkefnastyrki. Samstarfssamningar skulu stuðla að fjölbreyttu menningarlífi á Akureyri. Hægt er að sækja um samstarf til tveggja eða þriggja ára í senn. Við úthlutun er litið til fjölbreytileika í starfsemi,aldurs þátttakenda, jafnréttis og sýnileika.
Sótt er um á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/umsoknir
Hinvegar er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki. Verkefnin skulu auðga menningarlífið í bænum,hafa sérstöðu og fela í sér frumsköpun.
Vegna 100 ára afmælis Leikfélags Akureyrar verða 500.000 kr. eyrnamerktar verkefnum tengdum afmælinu.
Sótt er um á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/umsoknir
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2017.
Upplýsingar um reglur Menningarsjóðs og Menningarstefnu Akureyrar 2013-2018
eru á heimasíðu Akureyrarbæjar
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/reglur-og-samthykktir/menningarmal
Húsverndarsjóður Akureyrar
Sjóðnum er ætlað að vinna að verndun húsa og mannvirkja á Akureyri. Veittir verða tveir styrkir að upphæð kr. 250.000 kr. hvor.
Upplýsingar um reglur sjóðsins eru á heimasíðu Akureyrarbæjar http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/reglur-og-samthykktir/menningarmal
Sótt er um á heimasíðu Akureyrarbæjar http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/umsoknir
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2017.
Ákvarðanir um styrkveitingarnar eru teknar af stjórn Akureyrarstofu.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri viðburða- og menningarmála í netfanginu huldasif@akureyri.is
UMMÆLI