Allir hafa orðið varir við þá gríðarlegu aukningu ferðamann sem hefur orðið á Íslandi síðustu árum. Árið 2000 komu yfir 300.000 ferðamenn til Íslands, aðeins 10 árum síðar eða árið 2015 kom ein milljón og 300.000 manns til að ferðast um landið.
Þessi aukning hefur haft mikil áhrif á þjóðfélagið og ekki síst veitingageirann því einhverstaðar verður þetta fólk jú að borða. Ferðamálavefurinn TripAdvisor er mjög vinsæll meðal ferðamanna en þar getur fólk sagt álit sitt á öllum þeim afþreyingar og veitingstöðum sem stoppað er á.
Við ákváðum að skoða hvaða 5 veitingastaðir á Akureyri skora hæst samkvæmt síðunni vinsælu.
5. Hamborgarafabrikkan – Það eru félagarnir Simmi og Jói sem verma 5. sætið á listanum með hamborgarastaðinn sinn. Einn ánægður viðskiptavinur líkir staðnum við hinn vinsæla Cheesecake Factory. Þá hrósa margir starfsfólki staðarins fyrir góða þjónustu.
4. Akureyri Fish and Chips – Sökum þess hve hátt hlutfall ferðamanna á Íslandi um þessar mundir eru bretar, þá kemur það kannski ekki á óvart að þessi staður komi vel út. Af umsögnum að dæma færðu úrvals fisk og franskar í Skipagötunni.
3.Örkin hans Nóa – Staðurinn sérhæfir sig í sjávarréttum og virðast vera að gera það nokkuð vel. Fallega staðsettur veitingastaður sem ferðamenn eru hrifnir af.
2. Strikið – Ferðamenn flykkjast á Strikið og virðast í flestum tilfellum mjög ánægðir. Það er ekki bara maturinn sem heillar heldur tala margir gestir um útsýnið.
1. Rub23 – Ferðamenn sem koma til Akureyrar virðast hreinlega elska Rub23 í Gilinu. Þeirra margrómaða Sushi pizza fær sérlega mikið lof og þá virðast gestir vera mjög hrifnir af staðsetningu og útliti staðarinns.
UMMÆLI