Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, boðar til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein.
Félagsmenn Krafts eru krabbameinsgreindir einstaklingar á aldrinum 18 – 40 ára og aðstandendur. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á aðstæðum þessa fólks. Auk þess verður leitað til almennings að gerast mánaðarlegir styrktaraðilar til að styðja við bakið á starfseminni.
Hluti af herferð Krafts verður að perla armbönd sem á stendur „Lífið er núna“ og eru þau seld til styrktar Krafti.
Kraftur fékk auk þess þau Annie Mist Crossfit-drottningu, Björgvin Pál landsliðsmarkmann, Jón Jónsson tónlistarmann, Ragnhildi Steinunni fjölmiðlakonu, Sögu Garðarsdóttur leikkonu og Þorvald Davíð leikara til að “bera á sér skallann”. Myndirnar sýna fram á að hver sem er getur greinst með krabbamein en um 70 ungir einstaklingar á aldrinum 18 – 40 ára greinast með krabbamein ár hvert á Íslandi.
UMMÆLI