„Það hefði verið hægt að lenda á vellinum ef þessi braut hefði verið opin,“ segir Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs í samtali við mbl.is í dag.
Þarna vísar Leifur til þess þegar ekki tókst að flytja gjörgæslusjúkling í fyrsta forgangi frá Akureyri undir læknishendur í Reykjavíkur sl. fimmtudag. Sjúkraflugvél Mýflugs gat ekki lent á Reykjavíkurflugvelli vegna slæms veðurs í borginni.
Sjúklingurinn beið í um sólarhring áður en starfsmenn Mýflugs gátu flutt hann suður. Þá hafði veður á Reykjavíkurflugvelli skánað til muna.
UMMÆLI