Svona var aðkoman að Akureyrarkirkju í morgun en séra Svavar Alfreð Jónsson, prestur í Akureyrarkirkju, birti þessar myndir á Facebook síðu sinni rétt í þessu. Svavar tekur fram að í kirkjunni eigi að fara fram útför í dag. Svo virðist sem skemmdarvargarnir hafi spreyjað á veggi kirkjunnar í nótt en krotað hafði verið á marga staði.
Uppfært:
Samkvæmt heimildum Kaffisins hafði líka verið krotað á veggi þriggja annarra kirkna á Akureyri, Glerárkirkju, Kaþólsku kirkjunnar, og Hvítasunnukirkjunnar.
UMMÆLI