Fjórir voru handteknir vegna framleiðslu fíkniefna í fjölbýlishúsi á Akureyri á mánudagskvöld. Lagt var hald á 14 kannabisplöntur ásamt ætluðum fíkniefnum og framleiðslutækjum og tólum. Rúv greinir frá þessu í dag.
Þrír karlmenn og ein kona voru handtekin, flutt á lögreglustöð og vistuð þar, þar til unnt var að yfirheyra þau. Fólkið er allt á fertugsaldri.
Málið telst því vera upplýst.
UMMÆLI