Ekkert bendir til þess að barnið sem var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að hafa misst meðvitund á leikskólanum Álfasteini í Hörgársveit hafi lent í slysi eða innbyrt nokkuð sem kann að skýra meðvitundarleysið. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokið rannsókn sinni á málinu.
Á vef mbl.is segir að engin vitni hafi orðið að neinu sem kunni að skýra málið en einn leikskólakennarinn hafi tekið eftir því að ekki væri allt með felldu þegar barnið stóð upp við tré og byrjaði að blána í framan.
Sjá einnig: Barnið sem slasaðist á leikskóla í Hörgársveit á batavegi
„Leikskólakennarinn sér barnið í þessu ástandi en það sér enginn þegar það fer í þetta tiltekna ástand. Leikskólakennarinn sá barnið standandi og hallandi sér upp að tré þegar hann tók það upp. Það var orðið blátt í framan. Leikskólakennarinn fór með barnið inn þar sem aðrir taka við því. Þá breytist litaraftið til hins betra,“ segir Valur Magnússon, lögreglufulltrúi rannsóknardeildar lögreglunnar á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is.
Að sögn hans standa læknar á gati með það hvað kann að hafa orsakað þetta. Barnið er nú komið til meðvitundar og ekkert sjáanlegt virðist ama að því eins og staðan er í dag.
UMMÆLI