Kaffið tók saman nokkrar jólagjafahugmyndir fyrir dömurnar á laugardaginn og því lá vel vil að gera einn slíkan fyrir herrana líka. Greinin er ekki að neinu leyti kostuð.
Fila/Reebok/Champion föt – Íþrótta/Joggingtískan er búin að vera áberandi síðustu misseri en það virðist vera sem risarnir Nike og Adidas séu að víkja fyrir merkjum eins og Fila og Champion. Þessi gjöf hentar báðum kynjum.
Komono úr – Fallegt og klassískt úr er auðvitað alltaf frábær jólagjöf. Komono úrin eru mjög smekkleg og henta öllum.
Svarti Galdur – Nýjasta bók Stefáns Mána fjallar um morð á Alþingismanni, hver elskar ekki að lesa góða bók á jóladag?
BEOPLAY H6 Heyrnatól – Glæsileg heyrnatól frá danska framleiðandanum Bang & Olufsen.
Strigaskór – Vinsældir þeirra virðast engan endi ætla að taka. Flottir strigaskór frá Adidas er gjöf sem gleður.
Salty Dog húfa – Mjög fallegar húfur frá The North Face er frábær gjöf sem nýtist vel í vetur.
Playstation 4 – Það vilja allir eiga eina Playstation 4, frekar dýr gjöf en mun pottþétt slá í gegn
Sjá einnig: Jólagjafahugmyndir fyrir hana
UMMÆLI