Bæjarstjórn Akureyrar hefur boðað til blaðamannafundar í Menningarhúsinu Hofi (Nausti) kl. 12 á hádegi í dag. Efni fundarins eru breytingar á meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum en ekki kemur fram í tilkynningunni hvaða breytinga er að vænta. Í umfjöllun Vikublaðsins um málið segir að mynduð verði svokölluð „þjóðstjórn“ þar sem allir flokkar komi að borðinu. Þetta verði gert vegna slæms reksturs bæjarins.
Eftir síðustu kosningar mynduðu Samfylkingin, L-listi og Framsóknarflokkur meirihluta í bæjarstjórn en flokkarnir hafa hver um sig tvo bæjarfulltrúa sem gerir sex af ellefu bæjarfulltrúum.
UMMÆLI