Á morgun, sunnudaginn 4.desember, verður boðið upp á stórleik í körfubolta í Íþróttahöllinni á Akureyri þegar heimamenn í Þór fá Tindastól í heimsókn í 16-liða úrslitum Maltbikarsins.
Það er óhætt að segja að þarna fari tvö af heitustu körfuboltaliðum landsins um þessar mundir en bæði lið hafa verið á sigurbraut að undanförnu.
Sauðkrækingar hafa unnið fjóra leiki í röð og sitja í öðru sæti Dominos-deildarinnar. Þórsarar hafa unnið þrjá leiki í röð í deildinni og eru í fimmta sæti.
Það er því ljóst að eitthvað þarf undan að láta og von er á hörkuslag í Höllinni á morgun. Við hvetjum fólk til að fjölmenna í Höllina á morgun og tökum undir orð Jóns Ágústs Eyjólfssonar sem fer með leiksigur hér að neðan.
UMMÆLI