Tónlistarmaðurinn geðþekki Ivan Mendez lenti í afar óskemmtilegri lífsreynslu við heimili sitt í Norðurgötu á Akureyri í gærkvöldi. Hafði bíræfinn þjófur stolið báðum höfuðpúðunum í framsæti Toyota bifreiðar hans.
Engu öðru var stolið úr bílnum en Ivan sem gleymdi að læsa bílnum greindi frá þessu á Snapchat aðgangi sínum í dag.
Ivan segir í samtali við Kaffið að ef að þjófurinn sæi að sér og langaði að skila höfuðpúðunum væri hann velkominn í te til hans. Hann myndi jafnvel reyna að baka eitthvað.
Við vonum að þetta mál leysist sem fyrst.
UMMÆLI