Grunnskólakennarar á flestum stöðum á landinu ætla að leggja niður störf klukkan 13.30 í dag og þannig sýna samstöðu í kjaradeilu þeirra við sveitarfélögin. Þetta er í annað sinn í þessum mánuði sem kennarar leggja niður störf og ganga út.
Kennarar á Akureyri hafa ákveðið að hittast á samstöðufundi í húsakynnum KFUM og KFUK í dag.
Ljóst er að mikil reiði er meðal kennara og hafa t.a.m rúmur þriðjungur kennara Seljaskóla í Breiðholti hefur sagt upp störfum eins og RÚV greindi frá í gær.
UMMÆLI