Árleg gönguvika hefst í dag þar sem boðið er upp á kvöldgöngur um fjölbreytta staði í bæjarlandinu. Þetta kemur fram á vef bæjarins.
Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu og Ferðafélags Akureyrar. Allar göngurnar byrja kl. 19.00 og taka á bilinu tvær til fjórar klukkustundir.
Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig á heimasíðu Ferðafélags Akureyrar.
Þetta er ellefta árið í röð sem gönguvikan er haldin og hefur aðsókn í göngurnar undanfarin ár verið mjög góð.
Allar nánari upplýsingar er að finna á visitakureyri.is.
Mynd: María T./akureyri.is