Ný matvöruverslun undir vörumerkinu Extra hefur verið opnuð á Akureyri. Verslunin kemur í stað Iceland verslunarinnar á Akureyri.
Verslanir Extra eru í eigu Basko ehf. sem á og rekur verslanir 10-11 og Kvikk.
Sigurður Karlsson, forstjóri Basko, segir að í versluninni verði meðal annars boðið boðið upp á vörur úr Costco sem munu fást á Costco verði.
UMMÆLI