Eldur kom upp á svölum í blokkaríbúð í miðbæ Akureyrar í kvöld. Eldurinn kom upp í grilli á svölunum.
Öll vakt slökkviliðsmanna á Akureyri var send út vegna eldsins sem talið er að hafi komið upp þegar gaskútur sem var tengdur við grillið sprakk.
Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning rétt fyrir klukkan átta og í kjölfarið var Slökkvilið Akureyrar fljótt á vettvang.
Slökkviliðið hefur nú slökkt eldinn. Samkvæmt lögreglunni á Akureyri gekk vel að slökkva eldinn og það náðist áður en eldurinn dreifði sér.
Talið er að lítið eignartjón hafi orðið vegna eldsins og þá varð ekkert manntjón.
UMMÆLI