STEF og ÚTÓN, í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri, munu halda sameiginlegan fund með norðlensku tónlistarfólki í Hofi þann 15. maí næstkomandi kl 16:00.
Á fundinum verða Guðrún Björk Bjarnadóttir frá STEFi og Bryndís Jónatansdóttir frá ÚTÓN. Þær munu kynna þá þjónustu sem fyrirtækin bjóða upp á fyrir tónlistarfólk og tónlistartengd fyrirtæki, auk þess sem kynntar verða endurgreiðslur á hljóðritunarkostnaði.
Hér eru nánari upplýsingar um dagskrána:
Guðrún Björk Bjarnadóttir frá STEFi fjallar m.a. um:
- Greiðsluflæði tónlistarveitna
- Mismunandi dreifingarleiðir sem eru í boði
- Hvaða leiðir eru í boði til að koma tónlist sinni í kvikmyndir og þætti
- Hver er munurinn á tónlistarforleggjara (music publisher) og tónlistarráðgjafa?
- Að hverju þarf að gæta við samningsgerð?
Bryndís Jónatansdóttir frá ÚTÓN fjallar um:
- Endurgreiðslur á hljóðritunarkostnaði
- Stuðnings- og fræðsluverkefni í boði hjá Útón
- Útflutningssjóð íslenskrar tónlistar
- Ja Ja Ja
- Tónlistarhátíðir erlendis
Fundurinn er haldinn í Lundi í Menningarhúsinu Hofi.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
UMMÆLI