Akureyringar er hlaðvarp Akureyrarbæjar þar sem rætt er við alls konar fólk sem á það sameiginlegt að auðga samfélagið með einum eða öðrum hætti.
„Við kynnumst fólki sem vinnur gott starf í þágu íbúa, skyggnumst á bak við tjöldin, fræðumst um áhugaverð verkefni og um leið fjölbreytta þjónustu bæjarins,“ segir í lýsingu á Hlaðvarpinu.
Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Jón Þór Kristjánsson, verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Akureyrarstofu.
Í þættinum hér að neðan ræðir Jón Þór við Bryndísi Elfu Valdemarsdóttur, forstöðumann forvarna- og frístundadeildar Akureyrarbæjar.
UMMÆLI