Bardagakappinn Conor McGregor rotaði Eddie Alvarez á bardagakvöldinu UFC 205 í New York í morgun. Mikil eftirvænting var fyrir bardagann en Írinn Conor kláraði bardagann í annarri lotu.
Sigurinn var í ran aldrei í hættu þar sem Conor var með yfirhöndina frá fyrstu mínútu. Conor var mjög yfirvegaður allan bardagann og sýndi enn og aftur að hann er kóngurinn í UFC.
Conor er eftir sigurinn sá fyrsti í sögunni til að vera meistari í tveimur þyngdarflokkum á sama tíma. Írinn geðþekki er nú meistari í fjaður- og léttvigt í UFC, magnað afrek.
Myndband af Conor McGregor rota Eddie Alvarez má sjá hér að neðan
Conor McGregor makes UFC history. KO’s Eddie Alvarez and now holds two belts at one time. #UFC205 #UFCNYC https://t.co/WwuGLXAl1d
— Dylan (@DylansFreshTake) November 13, 2016
UMMÆLI