Akureyringurinn Ragnheiður Inga Matthíasdóttir sendi í gær frá sér rapplagið Sóttkví og myndband við lagið.
Ragnheiður, sem er 12 ára nemandi við Brekkuskóla á Akureyri, hefur verið í sóttkví með fjölskyldu sinni frá því að þau komu heim úr ferð til Spánar.
Ragnheiður eða Ragga Rix stefnir á að verða heimsfrægur rappari lögin hennar má finna á Youtube.
„Þið finnið mig á Youtube, ég set lögin mín þar inn. Fylgið mér þar ég er að reyna að fá 1000 áskrifendur,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Myndbandið við lagið er stórskemmtilegt:
UMMÆLI