22 smit vegna COVID-19 hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram á covid.is þar sem nýjustu tölur vegna smita voru birtar klukkan 13. Staðfestum smitum fjölgar um þrjú frá því í gær.
Sjá einnig: Ekki með tölur yfir staðfest smit á Akureyri
401 einstaklingur er nú í sóttkví og því fækkar einstaklingum í sóttkví annan daginn í röð.
Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.