Af og til tekur fólk ástfóstri við alls konar fyrirbæri og æði grípur landann. Mörg þessi trend eru jákvæð og skemmtileg en það eru þau svo sannarlega ekki öll. Ég hef ákveðið að taka saman lista yfir þau trend sem ég mun ekki sakna.
10. Plankinn – Sumarið 2011 þótti ægilega snjallt að liggja eins og planki á sniðugum stöðum og taka mynd af því. Frábært tímabil fyrir sniðugt fólk.
9. Pókemon Go – Mikið æði sem olli því að fólk útum allan heim fór að leita að Pókemonum og trufla venjulegt fólk. Hafði þó þau jákvæðu áhrif að Mountain Dew þambandi tölvufíklar sem höfðu ekki séð sólarljós í mörg ár fóru út úr húsi.
8. Ice bucket áskorunin – Fólst í því að fólk hellti fötu með köldu vatni á hausinn á sér, voða sniðugt. Einhverjir nýttu þó tækifærið og studdu gott málefni sem er flott.
7. Dab – Já þetta er búið og í guðanna bænum hættið þessu.
6. Harlem Shake – Fólst í því að þú hristir líkamann fram og aftur eins og þú ættir lífið að leysa. Fyndið fyrst en þegar ég hafði séð 5000 vinnustaði á Íslandi skella í Harlem Shake fékk ég hreinlega nóg.
5. Hoppa í sjóinn – Sumarið 2014 tók fólk upp á því að hoppa í sjóinn, taka það upp á myndband og skora á aðra að vera jafn vitlaus að henda sér í ískaldan sjó. Náði þessu aldrei.
4. Víkingaklappið – Við þekkjum öll söguna, var geggjað á EM í sumar en þegar ríkisstjórnin er farin að taka þetta þá er þetta dautt.
3. Karlmenn með snúð í hárinu- Hef ekki enn fundið mann sem púllar þetta.
2. Bjóráskorunin – Fólst í því að þamba bjór í einum sopa og setja myndband af því á Facebook. Versta hugmynd sem ég hef heyrt.
- – Að gerast vegan – Þetta trend er ennþá í gangi og þú ert ekki maður með mönnum nema neita þér um dýraafurðir. En að nenna þessu!
UMMÆLI