Akureyringurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson bætti sitt eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi innanhúss í gær. Kolbeinn Höður kom í mark á 21,21 sekúndu í úrslitahlaupinu á 2020 American Indoor Track and Field Championship þar sem hann keppir fyrir Memphis-háskóla.
Kolbeinn bætti metið þegar hann keppti til úrslita í mótinu. Hann endaði í fjórða sæti á mótinu í heildina. Á föstudaginn keppti hann í undanúrslitum þar sem hann hljóp á 21,42 sekúndum.
Fyrra Íslandsmet hans í greininni var 21,32 sekúnda en það met setti Kolbeinn einnig í Bandaríkjunum árið 2017.
Hér að neðan má sjá myndband af hlaupinu af vef Frjálsíþróttasambands Íslands.
UMMÆLI