Laugardaginn 1. febrúar verður alþjóðlega samsýningin Línur opnuð í Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni koma saman átta listamenn frá sex ólíkum löndum og fjórum heimsálfum; Hong Kong, Litháen, Japan, Þýskalandi, Mexíkó og Túnis og „draga línur“. Línurnar verða til í gegnum ólík listform í þeim tilgangi að eiga samskipti við umheiminn. Sýningin tengir Ísland við fjarlæga og framandi menningarheima í gegnum myndlist. Hluti verkanna er staðbundinn, þ.e. unninn sérstaklega inn í rýmið í Listasafninu á Akureyri. Á meðal þess sem verður til í rýminu eru kontrapunktar þar sem verkin ýmist trufla eða bæta við hvert annað.
Titill sýningarinnar vísar til tenginga á milli landa, á milli listforma, á milli listamanna og við samfélagið. Lína er ljóðræn, listræn fegurð, sem talar við samfélagið á opinn og hlutlausan hátt. Allt er spurning um sjónarhorn, hvert „horn“ afhjúpar eitthvað nýtt og verður hvati að ólíkum samtölum. Sýning sem þessi skapar skilning í gegnum samskiptin sem eiga sér stað á milli listforma og menningarheima – slíkt leiðir af sér aukið umburðarlyndi og samkennd.
Þátttakendur: Almuth Baumfalk, Armando Gomez, Hiro Egami, Rym Karoui, Miyuki Kido, Kristine Schnappenburg, Saulius Valius, Lap Yip. Sýningarstjóri: Mireya Samper.
Listamannaspjall með sex af listamönnum sýningarinnar og Mireyu Samper, sýningarstjóra, kl. 16 á opnunardegi. Stjórnandi: Hlynur Hallsson.
Fjölskylduleiðsögn um sýninguna verður sunnudaginn 16. febrúar kl. 11-12. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnfræðslu Listasafnsins.
UMMÆLI