Miðvikudaginn 8. janúar úthlutaði Norðurorka styrkjum til samfélagsverkefna en athöfnin fór fram í Listasafninu á Akureyri. Alls voru 46 verkefni sem fengu styrki en heildarfjárhæð styrkjanna nam sjö milljónum króna.
Í byrjun nóvember 2019 auglýsti Norðurorka hf. eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2020 og rann umsóknarfrestur út 19. nóvember. Fram kom að veittir væru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjum Norðurorku hf. er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Alls bárust 105 umsóknir. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á starfssvæði Norðurorku sem nær frá Fjallabyggð til Þingeyjarsveitar en einnig komu nokkrar umsóknir annarsstaðar frá. Verkefnin voru fjölbreytt og greinilega mikil gróska í samfélaginu á fjölmörgum sviðum.
Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hlutu samfélagsstyrk Norðurorku árið 2020:
Styrkþegi | Verkefni |
Aldís Kara Bergsdóttir | Afreksstyrkur – Listhlaup á skautum. |
Alþýðumenning við Eyjafjörð | Eyfirski safnadagurinn 2020. |
Amtsbókasafnið á Akureyri | Kaup á snjalltækjum til notkunar í verkefninu Snillismiðjan. |
Anna Lindberg – Kór fyrir alla | Kór fyrir alla – Markmið starfsins er gleði og hamingja. |
Aron Máni Sverrisson | Afreksstyrkur – Skíði. |
ÁLFkonur | Ljósmyndasýning í Lystigarðinum á Akureyri 2020. |
Bifhjólasamtök Norðuramts | Hjóladagar á Akureyri í júlí 2020. |
Björgunarsveitin Ægir á Grenivík | Bygging nýs aðstöðuhúsnæðis. |
Dansfélagið Vefarinn | Sýning þar sem kynnt verða þjóðlög, þjóðdansar, þjóðbúningar og aðrar þjóðlegar hefðir. |
Heilaheill – Félag slagþolenda, aðstandenda og fagaðila | Fyrirlestrarferðir og kynningar á HEILA-APPINU, ásamt almennri fræðslu um málefninu. |
Helgi Jónsson | Heimildamyndagerð um Menntaskólann á Akureyri. |
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri | Kaup á augnbotnamyndavél. |
Hollvinir Húna II | Til reksturs Húna II sem er í dag m.a. notaður til fræðslu grunnskólanema á Eyjafjarðarsvæðinu. |
Hælið | Uppsetning leikritsins Meðan lífs ég er sem er heimildaleiksýning unnin út frá rýminu á Hælinu. |
Innflytjendaráð á Akureyri og nágrenni | Alþjóðlegt eldhús 2020. |
Íþróttafélagið Akur | Special Olympics sport festival í Danmörku í maí 2020. |
Jónas Sigurðsson | Upplýsingaöflun um gamlar rafstöðvar í Þingeyjarsveit. |
Kaffi Klara ehf. | Hljóðútgáfa sagna um gömlu símstöðina á Ólafsfirði sem gestir kaffihússins geta notið með aðstoð gamalla símtækja. |
Karl Guðmundsson | Heimildamyndagerð um líf Karls sem er hreyfihamlaður og listsamvinnu hans og Rósu Kristínar Júlíusdóttur. |
KFA Frjálsar | Kaup á búnaði. |
KFUM og KFUK á Akureyri | Kaup á lyftu til að auðvelda aðgengi fatlaðra að félagsheimilinu Sunnuhlíð. |
Kór eldri borgara á Akureyri – Í fínu formi | Kóramót vorið 2020. |
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis | Málþing um um krabbamein í konum með áherslu á BRCA 1 og BRCA 2 genastökkbreytingar. |
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis | Málþing um krabbamein í körlum – Hrúturinn. |
Kristín Irene Valdemarsdóttir | Fjallaskíða- og telemark keppni í Hlíðarfjalli. |
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri | Uppsetning á söngleiknum Into the Woods. |
Leikfélag Verkmennaskólans á Akureyri | Uppsetning á fjölskyldusýningunni Tröll. |
Lúðrasveit Akureyrar | Búningakaup. |
Margrét Árnadóttir | Tónleikarnir Hugarró þar sem allur ágóði rennur til Pietasamtakanna. |
Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi – SUNN | Heimildasöfnun fyrir söguritun félagsins í tengslum við 50 ára afmæli þess. |
Skautafélag Akureyrar Hokkídeild | Endurnýjun og viðbót við keppnisbúnað barna- og unglingastarfs. |
Skátafélagið Klakkur | Undirbúningur skáta á aldrinum 14-18 ára til að takast á við 5 daga ÍSHÆK. |
Skógræktarfélag Fnjóskdæla | Gerð upplýsingaskilta í Hálsskógi. |
Sólveig Zophoníasdóttir | Margmiðlunarsmiðja fyrir ungt fólk – kaup á Padcaster upptökubúnaði. |
Starfsendurhæfing Norðurlands | Verkefnið Gæfusporin |
Starfsmannafélag Skógarlundar | Kaup á búnaði í skynörvunarherbergi í Skógarlundi. |
Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir | Af hverju er ég femínisti – fræðslufyrirlestur um jafnrétti fyrir grunn- og framhaldsskólanema. |
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir | Tónleikaferð ásamt Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur, verk fyrir selló og orgel. |
Sundfélagið Óðinn | Aldursflokka meistaramót Íslands í sundi (AMÍ) sumarið 2020 fyrir 10-16 ára. |
Svavar Ingi Sigmundsson | Afreksstyrkur – Handbolti. |
Sönghópurinn Jódís | Tónleikarnir Á fáksspori í Léttishöllinni í apríl 2020. |
Tónlistarfélag Akureyrar | Tónleikaröð vorið 2020. |
UMF Smárinn | Gönguskíðanámskeið fyrir alla aldurshópa. |
Leikhópurinn Umskiptingar | Tvíleikurinn Í myrkri eru allir kettir gráir. |
Ungmennafélagið Narfi í Hrísey | Félagsmiðstöð unglinga í Hrísey. |
Vorhlaup VMA | Vorhlaup VMA 2020. |
UMMÆLI