Snjóbrettakappinn og Akureyringurinn Benedikt Friðbjörnsson úr Skíðafélagi Akureyrar keppti í brekkustíl (slopestyle) á alþjóðlega FIS mótinu Glacier 3000 í Sviss í gær.
Benedikt stóð sig með prýði á mótinu og endaði í fjórða sæti keppenda. Fyrir árangurinn hlaut Benedikt stig á heimslista FIS.
Benedikt náði fínum árangri í mótinu í morgun og landaði þar 4. sætinu. Benedikt er gífurlega efnilegur snjóbrettamaður en hann hefur, þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára gamall, unnið til fjölda verðlauna á stuttum tíma.
Úrslitin úr mótinu má sjá nánar hér
UMMÆLI