Stelpurnar í félagsmiðstöð eldri borgara í Bugðusíðu á Akureyri buðu slökkviliði Akureyrar í heimsókn í gær. Tilefnið var að afhenda slökkviliðsmönnum bangsa sem þær höfðu prjónað.
Slökkviliðið fékk afhenda 18 bangsa sem þær höfðu prjónað fyrir þeirra yngstu skjólstæðinga.
„Lítill bangsi í gjöf getur gert gæfumuninn þegar mikið liggur við. Slökkviliðið þakkar þeim kærlega fyrir bangsana,“ segir á Facebook síðu slökkviliðsins þar sem má sjá myndir frá heimsókninni.
UMMÆLI