Í gær voru veitt verðlaun fyrir þátttöku í aþjóðlegu hjólakeppninni Road Worlds for Seniors. Keppendur í Hlíð og Lögmannshlíð stóðu sig frábærlega og hjóluðu samtals yfir 5.000 kílómetra. Að keppni lokinni var lið Hlíðar í 5. sæti með 4.338 hjólaða kílómetra. Keppendur í Lögmannshlíð voru töluvert færri en stóðu sig vel og enduðu í 38. sæti. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Um er að ræða einskonar heimsmeistaramót eldri borgara í hjólreiðum en alls voru 194 lið sem tóku þátt, alls 4.333 keppendur frá sjö löndum. Keppnin stóð yfir í tæpan mánuð og óhætt að segja að líf og fjör hafi verið í sjúkraþjálfun á Öldrunarheimilum Akureyrar að undanförnu og hjólin þéttsetin. Boðið hefur verið upp á aukaæfingar sem hafa verið vel sóttar, enda keppnisskap þátttakenda mikið.
Hjólað er fyrir framan tölvuskjá og þannig geta keppendur slegið þrjár flugur í einu höggi; tekið þátt í keppninni, hjólað sér til heilsubótar og heimsótt fjölda borga um allan heim.
Fjóla Ísfeld hjólaði mest allra á Akureyri
Fjöldi manns var samankominn á hátíðlegri verðlaunaafhendingu í Hlíð í dag. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening og þeir sem hjóluðu lengst voru heiðraðir sérstaklega. Að lokinni verðlaunaafhendingu var boðið upp á kaffi og kökur.
Fjóla Ísfeld í Lögmannshlíð hjólaði mest allra á Akureyri, 616 kílómetra, en hún var í 10. sæti í heildarkeppni kvenna sem er glæsilegur árangur. Torfi Leósson hjólaði mest karla í Hlíð, 497 kílómetra, og Jónína Axelsdóttir hjólaði mest kvenna í Hlíð, 238 kílómetra.
Stefna á sigur á næsta ári
Þetta er í þriðja sinn sem keppnin er haldin og annað árið í röð sem Hlíð tekur þátt. Ásta Þorsteinsdóttir sjúkraþjálfari, sem heldur utan um verkefnið, segir að keppnin sé alltaf að verða sterkari og vinsælli. Hátt í tvöfalt fleiri lið séu skráð til leiks en í fyrra og hjóla þurfi miklu meira til að eiga möguleika á sigri. Lið Hlíðar stefnir þó að sjálfsögðu á sigur á næsta ári. „Áhuginn er meiri núna heldur en í fyrra og það er einhvern veginn meiri stemming og meira keppnisskap,“ segir Ásta.
UMMÆLI