Jarðskjálfti af stærðinni 4,6 á richter átti sér stað í nótt kl. 00.55. Norðlendingar sem voru á fótum fundu vel fyrir skjálftanum og eins voru margir sem vöknuðu við hann, ef marka má færslur á samfélagsmiðlum.
Að minnsta kosti einn skjálfti hefur mælst á svipuðum stað eftir þann stóra en sá var af stærðinni 1,9.
Upptök skjálftans voru rúma 20 kílómetra norður af Siglufirði og mældist hann á 2,7 kílómetra dýpi.
UMMÆLI