Það eru þessir hæfileikaríku krakkar sem hrepptu hlutverk Torfa og Grímu í nýja söngleiknum Gallsteinar afa Gissa sem frumsýndur verður í febrúar. Þau voru valin úr hópi 90 barna sem mættu í leik- og söngprufur í haust fyrir söngleikinn.
Þórgunnur Una Jónsdóttir, Steingerður Snorradóttir, Örn Heiðar Lárusson og Daníel Freyr Stefánsson skipta á milli sín hlutverkum systkinanna Torfa og Grímu. Systkinin, sem búa á afar annasömu nútímaheimili, heimsækja afa Gissa sem liggur á spítala eftir gallsteinaaðgerð þegar lífið tekur óvænta stefnu.
Gallsteinar afa Gissa er nýr fjölskyldusöngleikur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Auk krakkana fara Karl Ágúst Úlfsson, María Pálsdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson, Birna Pétursdóttir, Margrét Sverrisdóttir og Benedikt Gröndal með hlutverk.
UMMÆLI