A! Gjörningahátíð

Gáfu nemendum í grunndeild rafiðna spjaldtölvurNemendur með fulltrúum RSÍ og SART.

Gáfu nemendum í grunndeild rafiðna spjaldtölvur

Á dögunum komu fulltrúar Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ) og Samtaka rafverktaka (SART) í VMA og færðu 35. nemendur í grunndeild rafiðna spjaldtölvur af gerðinni Samsung að gjöf. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rafiðnaðarsambandið og SART gefa nemendum í rafiðngreinum spjaldtölvur, slíkt hefur verið árlegur viðburður undanfarin ár. Á vef Verkmenntaskólans er greint frá þessu og sagt þessar gjafir undirstrika áherslu rafiðngreina á rafrænar upplýsingar en mikið af kennsluefni í rafiðngreinum er aðgengilegt á vefnum www.rafbok.is og var Bára Halldórsdóttir, verkefnastjóri Rafbókar hjá Rafmennt, einmitt ein þeirra sem afhentu VMA-nemum spjaldtölvurnar.

VMA færir Rafiðnaðarsambandinu og SART innilegar þakkir fyrir spjaldtölvurnar og góðan stuðning við nám í rafiðngreinum í VMA.

VG

UMMÆLI

Sambíó