Framsókn

Yfirlitssýning á verkum Arnar Inga – Lífið er LEIK-fimiÖrn Ingi lést á síðasta ári.

Yfirlitssýning á verkum Arnar Inga – Lífið er LEIK-fimi

Laugardaginn 3. nóvember kl. 15 verður opnuð, í Listasafninu á Akureyri, yfirlitssýning á verkum Arnar Inga Gíslasonar (1945-2017) undir yfirskriftinni Lífið er LEIK-fimi. Sýningin er í raun skipulagður gjörningur um það hvernig bók verður til – bók um fjöllistamanninn Örn Inga sem var sjálfmenntaður og ósmeykur við að vera öðruvísi en aðrir.

Fræðistarfið sem fram fer á sýningartímanum hefst á því að skrásetja myndverk og efnistök, hlusta á frásagnir samferðamanna fjölistamannsins. Við opnun sýningarinnar eru fjölmargir viðarkassar í sýningarrýminu. Þeir eru lokaðir en við þá standa fyrrverandi nemendur listamannsins í hvítum sloppum, tilbúnir til að opna þá og hefja rannsóknarvinnuna. Eftir því sem á líður sýninguna verður hægt að fylgjast með störfum fræðimannsins við að taka fleiri verk upp úr kössunum (málverk, skúlptúra, tréverk, skartgripi, ljósmyndir o.fl.), skoða þau og meta, skrásetja og setja í samhengi, fá fagmenn til að gera við þau, ljósmynda, hlusta á aðra tala um þau og tengsl sín við listamanninn. Fara til baka til listaverkanna, horfa á þau og virða þau fyrir sér í nýju ljósi. Skrifa. Endurskrifa og prófarkalesa, setja upp bók og kynna á síðustu sýningarhelginni. Kassarnir standa auðir á gólfinu og myndheimur Arnar Inga umlýkur sali safnsins. Bókin er tilbúin og hún býður gestum að líta til sín á sýningartjaldið, óþreyjufull að komast á blað – á blað sögunnar.

Gestir eru hvattir til að koma oftar en einu sinni á sýninguna því hún breytist frá degi til dags. Þeir sem koma við sögu hafa unnið með fjöllistamanninum, tekið afstöðu til myndheimsins sem hann vann út frá, ferðast með honum um ókunn svæði, sótt til hans hugmyndir og efnivið um umheiminn. Hvað skildi hann eftir?

Sýningarstjóri: Halldóra Arnardóttir listfræðingur. Hönnuður sýningar: Javier Sánchez Merina, arkitekt.

Sýningin stendur til 27. janúar 2019 og er opin alla daga kl. 12-17.

Gj-ÖrnIngar 3. nóvember

15.00 – 15.30 Rannsókn hefst. Fyrstu kassar opnaðir með aðstoð fyrrverandi nemenda Arnar Inga.
15.15 – 15.30 Dans „Frelsi“. Sólveig Sánchez.
15.45 – 16.15 „Ótímasett tímamótaræða“ + samferðamenn Arnar Inga afhenda greinar: Oliver Kentish, Jonathan Bager, Ævar Kjartansson, Hreinn Valdimarsson og Lýður Sigurðsson.
16.20 – 16.45 „Sjálfsskoðun“, með þátttöku gesta.

Gj-ÖrnIngar 4. Nóvember

15.00 Kassar opnaðir með aðstoð fyrrum nemenda Arnar Inga.
15.30 Akureyringurinn. Samferðamenn Arnar Inga afhenda greinar: Eiríkur B. Björgvinsson og Guðbjörg Ringsted.
16.00 Ágúst Ólafsson, tæknimaður, setur upp hljóð og mynd.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó