Valgerður Þorsteinsdóttir er 23 ára upprennandi söngstjarna á Akureyri. Hún er dugleg að semja lög og texta sjálf en hún semur mest á píanó.
Hún setti inn nýja lagið sitt: The Wind, á facebook síðu sína á dögunum og hefur lagið vafalaust vakið mikla athygli.
Valgerður er að klára stúdentspróf á listnámsbraut við Verkmenntaskólann á Akureyri og stefnir á leiklistarnám næsta haust. Einnig er hún að læra söng í Tónlistarskólanum á Akureyri hjá Þórhildi Örvarsdóttur.
Við hvetjum fólk til að fylgjast með þessari flottu söngkonu.
UMMÆLI