Handboltalið KA/Þór á átta fulltrúa í landsliðshópum yngri landsliða Íslands. Framundan eru landsliðsæfingar hjá U15, U17 og U19 ára landsliðum Íslands og á KA/Þór fulltrúa í öllum liðinum. Á heimasíðu KA segir ,, Þetta eru frábær tíðindi og ákveðin viðurkenning fyrir það frábæra handbolta og stúlknastarf sem unnið er hjá KA.“
Þær stúlkur sem valdar voru í hópana voru: Sunna Guðrún Pétursdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir og Aldís Ásta Heimisdóttir í U19. Ólöf Marín Hlynsdóttir, Heiðbjört Anna Guðmundsdóttir, Anna Þyrí Halldórsdóttir og Margrét Einarsdóttir í U17. Helga María Viðarsdóttir í U15.
Við óskum þessum efnilegu stelpum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim í framtíðinni.
UMMÆLI