Myndarlegur borgarís er nú í mynni Eyjafjarðar. Þetta kemur fram á vef mbl.is.Talsvert hefur kurlast úr ísnum og hefur Landhelgisgæslan varað við ísbrotum sem geta reynst hættuleg í myrkri.
Staðsetning borgaríssins á hádegi í dag var 66°08.89 18°28,98 og á eftir að koma í ljós hvort að hann muni halda inn Eyjafjörðinn eða fara þar framhjá.
Vakthafandi starfsmaður Landhelgisgæslunnar segir í samtali við mbl.is að haft hafi verið samband við báta og skip á svæðinu og þau verið beðin um að láta fljótlega aftur vita af staðsetningu borgaríssins.
Hefur töluverður fjöldi hvalaskoðunarbáta og annarra báta á svæðinu siglt þar að til að skoða.
UMMÆLI