Jovan Kukobat átti frábæran leik fyrir KA menn þegar þeir sigruðu Hauka í Olís deild karla í handbolta um helgina.
Jovan var valinn leikmaður 2. umferðar í deildinni af Seinni Bylgjunni á Stöð 2 Sport fyrir frammistöðu sína. Hann varði 21 skot af þeim 43 sem hann fékk á sig.
„Hann var algjörlega geggjaður á móti Haukunum,“ sagði Tómas Þór þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar.
Áki Egilsnes var þá valinn í lið umferðarinnar líkt og Jovan og Stefán Árnason þjálfari KA var valinn þjálfari umferðarinnar. Stefán hefur verið þjálfari umferðarinnar í fyrstu tveimur umferðunum hjá Seinni Bylgjunni.
Jovan Kukobat, markvörður @KAakureyri, fékk tíu fyrir frammistöðuna á móti Haukum og er leikmaður 2. umferðar. Hann fær glaðning frá #nocco í næsta leik. Jovan var með ríflega 50% vörslu. @HBSstatz pic.twitter.com/7XWeMsLR1q
— Seinni bylgjan (@Seinnibylgjan) September 18, 2018
Og @KAakureyri eiga leikmann og þjálfarann í úrvalsliði 2. umferðar. Teddi Sigurbjörns hjá @ibvhandbolti einnig í liðinu aðra umferðina í röð. #olisdeildin pic.twitter.com/JgYHnKZ3eD
— Seinni bylgjan (@Seinnibylgjan) September 18, 2018
UMMÆLI