Blakdeild KA hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir næstu leiktíð bæði í karla- og kvennaflokki. Í tilkynningu á heimasíðu KA kemur fram að Miguel Mateo sé genginn í raðir liðsins frá Þrótti Neskaupstað. Miguel var stigahæsti leikmaður Mizuno-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Miguel mun spila fyrir karlalið KA en hann mun auk þess taka að sér þjálfun hjá kvennaliðinu. Kvennaliðinu barst einnig góður liðsstyrkur en Paula del Olmo Gomez gengur til liðs við liðið einnig frá Þrótti Nes. Paula var þriðji stigahæsti leikmaður Mizuno deildarinnar á nýliðnu tímabili og ljóst að hún mun styrkja liðið mjög.
Paula del Olmo fór fyrir liði Þróttar Nes. í vetur þegar liðið hampaði öllum titlum vetrarins og er ljóst að koma hennar til liðsins er gríðarlegur styrkur fyrir KA-liðið.
Miguel Mateo er Spánverji og verður 29 ára á árinu en hann hefur undanfarin ár leikið gríðarlega vel á Spáni og varð hann stigahæsti leikmaður Spænsku deildarinnar 2014-2015 og 2012-2013. 2015-2016 var hann næststigahæstur en hann var einnig í kringum toppinn 2016-2017 og 2013-2014.
UMMÆLI