Sunnudaginn 22. apríl kl. 12 – 13 í gestavinnustofu Gilfélagsins.
Listasmiðja fyrir smábörn á aldrinum 5 – 11 mánaða með finnsku listakonunni Marika Tomu Kaipainen. Í þessari listasmiðju eru börnunum gefin málning sem er búin til úr grænmeti og ávöxtum og með hjálp forsjáraðila búa börnin til listaverk. Börnin nota öll skilningarvitin sín, snertingu, heyrn, lykt, sjón og bragð. Skráning er ekki nauðsynleg en nánari upplýsingar veitir Marika hjá kaipainenmarikatomu @ gmail.com
Gestavinnustofa Gilfélagsins er staðsett í Kaupvangsstræti 23 – gengið inn að vestan við bílastæðin.
UMMÆLI