Þann 1. mars s.l. urðu þau tímamót að íbúafjöldi Skútustaðahrepps fór í 500 manns í fyrsta skipti síðan 1993 eða í 25 ár, samkvæmt mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands. Í dag eru Mývetningar orðnir 505 talsins. Síðan 2013 hefur íbúum Skútustaðahrepps fjölgað úr 370 í 505 sem er hvorki meira né minna en 36,5% fólksfjölgun.
Á rúmlega einu ári hefur íbúum fjölgað um tæp 19%, eða úr 425 í 505. Um 130 manns hafa annað ríkisfang en íslenskt eða um fjórðungur. „Þessi fjölgun í Skútustaðahreppi helst í hendur við öflugt atvinnulíf. Harðduglegir Mývetningar hafa hér byggt upp í sameiningu öflugt sveitarfélag. Íbúafjölgunina undanfarin ár má án nokkurs vafa fyrst og fremst rekja til uppgangs ferðaþjónustunnar og að hún er orðin að heilsárs atvinnugrein í meira mæli en áður. Ungt fjölskyldufólk hefur flutt í sveitina í miklum mæli og erlendu vinnuafli fjölgar. Þessi mikla fólksfjölgun þrýstir á innviði sveitarfélagsins. En þetta er fyrst og fremst jákvæð áskorun fyrir okkur. Þróunin er sú að hér eru t.d. jafn margir nemendur í leikskóla og grunnskóla,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps.
Íbúi nr. 500 í Skútustaðahreppi er Jónas Þór Ingólfsson sem flutti lögheimili sitt nýverið í Helluvað í Mývatnssveit. Hann er uppalinn í Mývatnssveit, fór suður að mennta sig sem mannvirkjajarðfræðingur en er nú snúinn aftur heim í heimahagana. Hann vinnur þessa dagana í Vaðlaheiðagöngum sem má segja að sé tímanna tákn því göngin mun eflaust hafa mjög jákvæð áhrif á búsetu í Mývatnssveit og nágrenni í framtíðinni þegar þau verða opnuð næsta haust. Íbúafjöldi í Skútustaðahreppi hefur sveiflast nokkuð í gegnum tíðina.
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru þeir fæstir hér 276 talsins árið 1910 en flestir árið 1980 eða 547 sem var í miðjum Kröflueldum. Þetta var á árum Kísiliðjunnar og hélst fólksfjöldinn yfir 500 allt til ársins 1994 en þá fór hann niður í 497 íbúa. Eftir það fækkaði íbúum smátt og smátt. Kísiliðjunni var lokað í nóvember 2004 en þá voru íbúar 442. Í kjölfarið fór að halla verulega undan fæti og fór fólksfjöldinn niður í 370 árið 2013. Síðan þá hefur þróunin heldur betur snúist við.
UMMÆLI