Fjallað um hatur og mismunun á Jafnréttisdögum í HA

Fjallað um hatur og mismunun á Jafnréttisdögum í HA

Hatursorðræða og mismunun eru meginþemu Jafnréttisdaga sem fara fram í háskólum landsins
dagana 10. – 13. febrúar. Möguleikar gervigreindar til að draga úr mismunun á vinnumarkaði,
Kvennaárið 2025, herferð Bandaríkjaforseta gegn jafnréttismeðvitund og mannréttindum,
stjórnmálavæðing lögreglu og samspil hatursorðræðu við gervigreind, samfélagsmiðla og
upplýsingaóreiðu, er aðeins brot af þeim fjölbreyttu viðburðum sem verða í boði á dögunum í ár
og þeir verða ýmist á staðnum eða í streymi.

Þetta er í 17. sinn sem Jafnréttisdögum er fagnað og þeir hafa í gegnum tíðina rutt brautina fyrir
frjóa og róttæka umræðu um jafnréttismál frá ýmsum hliðum. Dagskráin er afar metnaðarfull
og samanstendur af yfir 20 viðburðum sem tengjast jafnrétti og málefnum líðandi stundar.
Viðburðirnir fara fram ýmist fram á íslensku eða ensku eða báðum tungumálum.

Dagskrá Jafnréttisdaga hefst í hádeginu mánudaginn 10. febrúar með streymisviðburði undir
yfirskriftinni „Frá algrími til jafnréttis: Getur gervigreind unnið gegn mismunun á
atvinnumarkaði?“ Þar taka til máls Dilys Sharona Quartey, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla
Íslands, sem rannsakað hefur áhrif gervigreindar á atvinnumarkaðinn, og Sigyn Jónsdóttir,
tæknistjóri og meðstofnandi Öldu, nýsköpunarfyrirtækis sem þróar hugbúnaðarlausnir og
gagnvirka fræðslu fyrir vinnustaði til að stuðla að fjölbreytileika og inngildingu. Páll Rafnar
Þorsteinsson stjórnar umræðum.

Í Háskólanum á Akureyri fara fram eftirfarandi viðburðir í vikunni:

Þriðjudaginn 11. febrúar: Inngilding erlends starfsfólks og nemenda: Hvernig getum við gert
betur? Audrey Louise Matthews, lektor við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri flytur
erindi á ensku milli klukkan 12:00 og 13:00. Háskólinn á Akureyri, M-101; Einnig í streymi.

Miðvikudaginn 12. febrúar: Hvað gerir Bergið Headspace? Thelma Eyfjörð Jónsdóttir og Björgvin
Heiðarr koma frá Berginu Headspace og kynna starfsemi þess milli klukkan 12:00 og 13:00.
Háskólinn á Akureyri, M-101; Einnig í streymi.

Fimmtudaginn 13. febrúar: Jafnréttisvöfflur til heiðurs nýrrar jafnréttisáætlunar í Miðborg í
Háskólanum á Akureyri milli klukkan 09:15-10:00, en þar mun Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA,
kynna nýja jafnréttisáætlun skólans.

Fimmtudaginn 13. febrúar: Málþingið „Hatursorðræða: Þróun og áskoranir á tímum
gervigreindar, samfélagsmiðla og upplýsingaóreiðu“ mun fara fram í M101 og í streymi, milli kl.
10:00 og 11:30. Þar flytja Eyrún Eyþórsdóttir, lektor í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri,
Helgi Freyr Hafþórsson, verkefnastjóri margmiðlunar hjá KHA og Ingunn Lára Kristjánsdóttir,
verkefnastjóri fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum hjá RÚV, ávörp. Að þeim loknum fara fram
panelumræður. Fundarstjóri er Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur.

Dagskrá Jafnréttisdaga má finna á vefsíðu Jafnréttisdaga: https://www.jafnrettisdagar.is

Ókeypis er á alla viðburði Jafnréttisdaga og öll velkomin.

Sambíó
Sambíó