Andri Fannar Stefánsson framlengdi í dag samning sinn við knattspyrnudeild KA út sumarið 2025. Andri sem er 33 ára gamall miðjumaður er uppalinn hjá KA og hefur hann nú leikið 182 leiki í deild, bikar og Evrópu fyrir KA og gert í þeim 12 mörk. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins í dag.
„Andri braust ungur inn í lið KA sumarið 2008 þar sem hann sló í gegn en í kjölfarið gekk hann í raðir Valsmanna árið 2010. Þar varð hann tvívegis Íslandsmeistari og tvívegis Bikarmeistari. Hann sneri aftur heim fyrir sumarið 2019 og hefur leikið með KA síðan. Það eru frábærar fréttir að við munum halda Andra áfram innan okkar raða en afar spennandi sumar er framundan hjá Bikarmeisturum KA þar sem liðið tekur aftur þátt í Evrópukeppni,“ segir um Andra Fannar í tilkynningu KA.