Viðar Örn áfram í KAMynd/KA

Viðar Örn áfram í KA

Viðar Örn Kjartansson skrifaði í gær undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og leikur því áfram með Bikarmeisturum KA næsta sumar.

„Eru þetta ákaflega góðar fréttir en Viðar er einhver allra mesti markaskorari í sögu Íslands og sýndi hann gæði sín með KA á síðustu leiktíð,“ segir á vef KA. Þar segir einnig:

Það eru spennandi tímar framundan hjá Bikarmeisturum KA þar sem liðið leikur í Evrópukeppni í sumar auk þess sem það styttist í vígslu nýs keppnisvallar á KA-svæðinu. Það er klárt að reynsla Viðars mun vega þungt í Evrópuleikjunum og ætlumst við til mikils af þessum öfluga kappa.

Fyrir komu sína í KA lék Viðar með Búlgarska liðinu CSKA 1948, þar áður hafði hann leikið með stórum liðum á sínum ferli en 2014 hélt hann út til Vålerenga í Noregi þar sem hann varð markakóngur efstu deildar með 25 mörk í 29 leikjum.

Í kjölfar þessa stórkostlega tímabils í Noregi var hann keyptur til Jiangsu Sainty í Kína. Þaðan lá leiðin til Malmö FF í Svíþjóð þar sem hann gerði 14 mörk í 20 leikjum uns hann gekk í raðir Ísraelska stórliðsins Maccabi Tel Aviv. Með Maccabi gerði hann 32 mörk í 63 leikjum og var markakóngur deildarinnar tímabilið 2016-2017 með 19 mörk.

Árið 2018 gekk hann í raðir Rostov í Rússlandi en hann lék einnig með Rubin Kazan þar í landi. Hann sneri svo aftur í Vålerenga þar sem hann gerði 18 mörk í 42 leikjum. Eftir góða frammistöðu með Vålerenga lá leiðin til Grikklands þar sem hann lék með Atromitos áður en hann hélt til Búlgaríu.

Þá hefur Viðar Örn leikið 32 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og gert í þeim fjögur mörk. Við erum hæstánægð með að halda honum áfram innan okkar raða og hlökkum til að sjá til hans í sumar í gula og bláa búningnum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó