NTC

Logi Einarsson nýr samstarfsráðherra Norðurlanda

Logi Einarsson nýr samstarfsráðherra Norðurlanda

Ný ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum á Þorláksmessu tillögu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, gegni stöðu samstarfsráðherra Norðurlanda. Samstarfsráðherra Norðurlanda ber á byrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.

Norræna ráðherranefndin var sett á fót árið 1971 og er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Íslands, Danmerkur, Finnland, Noregs og Svíþjóðar auk sjálfsstjórnarlandanna Álandseyja, Færeyja og Grænlands. Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar sem samþykkt var í Reykjavík 2019 felur í sér markmið um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir 2030.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó