NTC

Nýju kirkjutröppurnar voru vígðar í dag

Nýju kirkjutröppurnar voru vígðar í dag

Nýj­ar og end­ur­bætt­ar kirkjutröpp­ur að Ak­ur­eyr­ar­kirkju voru vígðar síðdeg­is í dag. Bæjarstjóri Akureyrar, Ásthild­ur Sturlu­dótt­ir klippti á borða við opnunina og í kjölfarið var skrúðganga upp nýju tröppurnar.

Tröppurnar hafa verið lokaðar síðan í byrjun sumars 2023 en upphaflega stóð til að viðgreðin yrði kláruð strax um haustið 2023. Opnuninni hefur svo verið frestað tvisvar í viðbót síðan þá.

„Kirkjutröppurnar eru stór hluti af bæjarmynd Akureyrar og Akureyrarkirkja eitt helsta kennileiti bæjarins. Akureyrarbær þakkar bæjarbúum biðlundina og skilninginn sem þeir hafa sýnt meðan unnið hefur verið að endurbótum á kirkjutröppunum, þrátt fyrir ófyrirséðar hindranir sem tafið hafa verkið frá upphaflegri áætlun,“ segir á Akureyri.is.

Mynd: Davíð Rúnar

Sambíó

UMMÆLI